Handbolti

Ísland spilar gegn Dormagen

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari.
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari.
Ísland mun mæta liði TSV Dormagen í æfingaleik áður en liðið leikur tvo vináttuleiki gegn Þýskalandi í lok nóvember.

Þetta kemur fram á heimasíðunni handball-world.com í dag en Guðmundur Guðmundsson var áður þjálfari Dormagen.

Leikurinn mun fara fram fimmtudaginn 27. nóvember en leikirnir gegn þýska landsliðinu fara fram nokkrum dögum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×