Handbolti

Sävehof hélt toppsætinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hreiðar Guðmundsson, leikmaður Sävehof.
Hreiðar Guðmundsson, leikmaður Sävehof.

Sävehof hefur byrjað leiktíðina vel í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta en liðið lagði í gær Ystad, 32-21.

Liðið er á toppi deildarinnar með fjórtán stig eftir átta leiki en Lugi er einnig með fjórtán stig en Sävehof á leik til góða.

Hreiðar Guðmundsson kom ekki við sögu í leiknum í gær þar sem að hinn markvörður Sävehof, Thomas Forsberg, átti góðan dag og varði nítján skot.

Skövde, lið Einars Loga Friðjónssonar, er í sjöunda sæti deildarinnar með átta stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×