Handbolti

Kristinn hættur í Grikklandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristinn Björgúlfsson hvetur sína menn áfram.
Kristinn Björgúlfsson hvetur sína menn áfram.

Handknattleiksmaðurinn Kristinn Björgúlfsson er hættur hjá gríska úrvalsdeildarfélaginu PAOK Thessaloniki sem hann hefur leikið með síðan í sumar.

Þetta staðfestir hann í samtali við Sandefjords Blad en áður en hann hélt til Grikklands lék hann með norska úrvalsdeildarliðinu Runar.

Hann er án félags sem stendur og er óráðið hvað hann tekur sér fyrir hendur næst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×