Handbolti

Samúel Ívar yfirgefur Elverum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Samúel Ívar Árnason í leik með Haukum.
Samúel Ívar Árnason í leik með Haukum.

Samúel Ívar Árnason mun ekki leika meira með norska úrvalsdeildarliðinu Elverum á tímabilinu.

Ástæðan fyrir þess er að Samúel Ívar er að flytja til Oslóar. Upp kom sú hugmynd að hann myndi keyra á æfingar tvívegis í viku en á endanum var ákveðið að hann myndi hætta þess í stað strax.

Hann hefur átt góðu gengi að fagna með Elverum á tímabilinu en þjálfari liðsins er Axel Stefánsson. Ingimundur Ingimundarson og Sigurður Ari Stefánsson leika einnig með félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×