Erlent

Vilja gera út hryðjuverkamenn frá Noregi

Óli Tynes skrifar
Frá Osló.
Frá Osló.

Islamskir öfgamenn í Noregi eru farnir að reyna að fá unga múslima til þess að heyja heilagt stríð í öðrum löndum. Jörn Holme, yfirmaður norsku öryggislögreglunnar sagði í samtali við Aftenposten að þeir hefðu af þessu nokkrar áhyggjur.

Holme vildi ekki segja hvort þetta hefði skilað einhverjum árangri, en sagði að þeir sem reyndu að tæla unga fókið væru eldri múslimar sem byggju í Noregi. Hann sagði jafnframt að mat öryggislögreglunnar væri að lítil hætta væri á hryðjuverkaárásum í Noregi.

Holme varaði landa sína við því að fordæma múslima vegna fámennra öfgahópa og benti á að flest fórnarlömb hryðjuverkaárása væru múslimar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×