Handbolti

Ágúst heillaður af Levanger

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ágúst Jóhannesson, þjálfari Vals.
Ágúst Jóhannesson, þjálfari Vals. Mynd/Daníel

Ágúst Þór Jóhannesson segist hafa mikinn áhuga á því að koma aftur til Levanger en hann hefur undanfarna daga dvalist þar og skoðað aðstæður hjá handboltaliðinu þar í bæ.

Hann er einn þriggja sem koma til greina að taka við þjálfun kvennaliðs Levanger sem leikur í norsku úrvalsdeildinni.

„Ég vona að ég komi aftur. Ég hef mikinn áhuga á því," sagði Ágúst í samtali við norska fjölmiðla í gær.

„Ég er rétti maðurinn fyrir þetta lið og tel að ferill minn tali sínu máli," bætti Ágúst við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×