Handbolti

Ragnar aftur á fullt í Frakklandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar á fullu í frönsku deildinni.
Ragnar á fullu í frönsku deildinni. Nordic Photos / AFP

Ragnar Óskarsson hefur jafnað sig á hnémeiðslum sínum og lék með USAM Nimes í frönsku úrvalsdeildinni sem fór í gang eftir vetrarhlé í gær.

Nimes vann góðan sigur á Paris á útivelli, 23-21, og skoraði Ragnar sex mörk í leiknum og var markahæsti leikmaður sinna manna ásamt einum liðsfélaga sínum.

Á sama tíma tapaði St. Raphael fyrir Tremblay, 35-26, á útivelli. Bjarni Fritzson skoraði þrjú mörk fyrir St. Raphael sem er í tíunda sæti deildarinnar.

Nimes er í sjötta sætinu, tólf stigum á eftir toppliði Montpellier.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×