Handbolti

Ólafur með sjö mörk í sigri Ciudad Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur á fullu í leik með Ciudad Real.
Ólafur á fullu í leik með Ciudad Real. Mynd/Vilhelm

Ciudad Real hélt toppsæti sínu í spænsku úrvalsdeildinni í gær með átta marka sigri á Teucro, 30-22.

Ólafur Stefánsson skoraði sjö mörk í leiknum, þar af eitt úr víti, og var markahæstur á vellinum.

Ciudad Real er því enn með eins stigs forystu á Barcelona sem vann Arrate í gær, 36-30.

Sigfús Sigurðsson var í liði Ademar Leon sem vann Antequera, 25-22, í gær. Ademar er í fjórða sæti deildarinnar með 26 stig, rétt eins og Portland, og er fjórum stigum á eftir Ciudad Real.

Þá skoraði Árni Sigtryggsson eitt mark fyrir Granollers sem vann Torrevieja, 28-21. Granollers er í tíunda sæti deildarinnar með fjórtán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×