Handbolti

Fredericia tapaði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hannes Jón (25) fagnar marki með Íslandi á EM í Noregi.
Hannes Jón (25) fagnar marki með Íslandi á EM í Noregi. Mynd/Pjetur

Danska úrvalsdeildarliðið Fredericia tapaði heldur stórt fyrir AaB í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 33-25.

Hannes Jón Jónsson og Gísli Kristjánsson skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Fredericia í leiknum en Fannar Þorbjörnsson komst ekki á blað.

Liðið er sem fyrr í níunda sæti deildarinnar með sautján stig en AaB er í því áttunda með 21 stig.

Þá skoraði Þorri Gunnarsson eitt mark fyrir TMS sem vann nauman sigur á botnliði Skanderborg á útivelli, 24-23. TMS er sem fyrr í næstneðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×