Handbolti

Guðjón Valur með átta mörk

Elvar Geir Magnússon skrifar
Guðjón Valur í leik með landsliðinu.
Guðjón Valur í leik með landsliðinu.

Þýska liðið Gummersbach vann Görenje Velenje frá Slóveníu 33-30 í Meistaradeild Evrópu í handbolta dag. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir Gummersbach í leiknum. Róbert Gunnarsson skoraði fimm mörk.

Þá tapaði Flensburg fyrir spænska liðinu Portland San Antonio. Leikurinn fór fram á Spáni og endaði 30-22. Alexander Petersson skoraði fjögur mörk fyrir Flensburg.

Gummersbach hefur tvö stig eftir tvo leiki í sínum riðli en Flensburg er með eitt stig eftir tvo leiki í sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×