Handbolti

GOG tapaði í dag

Elvar Geir Magnússon skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson.
Snorri Steinn Guðjónsson.

Snorri Steinn Guðjónsson og félagar í danska liðinu GOG töpuðu fyrir ungverska liðinu Pick Szeged í Meistaradeild Evrópu í dag.

Þegar staðan var jöfn misnotaði Snorri Steinn vítakast og ungverska liðið tryggði sér sigurinn í næstu sókn 34-33.

Öll liðin í riðlinum eru með tvö stig eftir tvo leiki.

Barcelona vann stórsigur á Celje frá Slóveníu 39-28 í sama riðli í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×