Handbolti

Sigur hjá Sävehof

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hreiðar Guðmundsson, markvörður Sävehof.
Hreiðar Guðmundsson, markvörður Sävehof.
Sävehof færðist nær toppsæti sænsku úrvalsdeildarinnar með sigri á H43 í gær, 33-28.

Hreiðar Guðmundsson stóð lengst af í marki Sävehof og varði sjö skot í leiknum, þar af eitt víti, en hlutfallsmarkvarsla hans var upp á 29 prósent.

Sävehof er nú með 30 stig, rétt eins og Ystad en bæði lið hafa leikið 22 leiki. Þau eru einu stigi á eftir toppliði Hammarby sem á þó leik til góða.

Hitt Íslendingaliðið, HK Malmö, er í næstneðsta sæti deildarinnar með ellefu stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×