Handbolti

Tímaspursmál hvenær Balic kemur heim

Ivano Balic
Ivano Balic Nordic Photos / Getty Images

Forráðamenn króatíska handboltaliðsins Zagreb vilja ólmir fá hinn sterka Ivano Balic aftur til heimalandsins frá Portland San Antonio á Spáni. Balic er almennt talinn einn besti handboltamaður í heiminum, en hann er samningsbundinn Portland til ársins 2010.

Hann ku þó vera með klásúlu í samningi sínum við spænska liðið sem fær hann lausan fyrir 800,000 evrur. "Við viljum Balic og hann vill koma til okkar, svo þetta er bara spurning um hvenær en ekki hvort. Ætli við þurfum ekki að semja við Portland. Tíminn mun leiða þetta í ljós," sagði yfirmaður Zagreb, Bartol Kaleb í samtali við fjölmiðla í Króatíu.

Zagreb er heldur betur búið að styrkja sig að undanförnu þar sem liðið hefur fengið til sín hetjur á borð við Vlado Sola, Mirza Dzomba og Igor Vori.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×