Handbolti

Hreiðar varði sautján skot í stórsigri Sävehof

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hreiðar Guðmundsson.
Hreiðar Guðmundsson.

Sävehof vann öruggan sigur IFK Trelleborg í sænska handboltanum í kvöld 38-25. Markvörðurinn Hreiðar Guðmundsson lék í marki Sävehof og varði 17 skot en hann var með 41% markvörslu.

Trelleborg stóð í Sävehof stærstan hluta leiksins en á síðustu tuttugu mínútunum tók Sävehof öll völd á vellinum og vann þrettán marka sigur.

Sävehof er í þriðja sæti deildarinnar með með 32 stig, stigi á eftir Ystads sem er í öðru sæti. Hammarby er á toppi deildarinnar með 37 stig. Trelleborg er hinsvegar í næstneðsta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×