Handbolti

Arnór lék með FCK á ný

Mynd/Birkir Baldvinsson

Landsliðsmaðurinn Arnór Atlason lék með liði sínu FCK á ný eftir langvarandi meiðsli í dag þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum EHF keppninnar í handbolta með öruggum sigri á franska liðinu Dunkerque 37-26.

Arnór skoraði eitt mark í leiknum og fór danska liðið örugglega áfram eftir síðari viðureign liðanna.

Þýska liðið Rhein-Neckar Löwen tryggði sér sömuleiðis sæti í undanúrslitum með sigri á löndum sínum í Magdeburg á útivelli 31-29, en Löwen vann fyrri leik liðanna einnig með tveggja marka mun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×