Enski boltinn

Tottenham hætt við Arshavin

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham hefur hætt við áform sín um að reyna að krækja í rússneska landsliðsmanninn Andrei Arshavin frá Zenit í Pétursborg ef marka má frétt BBC.

Sagt er að Rússarnir hafi þegar neitað tilboði enska félagsins í hinn 27 ára gamla leikmann, en nú verður líklega ekkert af kaupunum þrátt fyrir að leikmaðurinn hafi sjálfur lýst yfir áhuga á að fara til Lundúna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×