Handbolti

Danir burstuðu Austurríkismenn

AFP

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í austurríska landsliðinu máttu þola stórt tap 39-22 fyrir Dönum á fjögurra liða æfingamóti sem fram fer í Austurríki.

Sigur danska liðsins var aldrei í hættu og hafði það yfir 21-9 í hálfleik. Ulrik Wilbek hafði á orði að danska liðið hefði ekki spilað betri leik í langan tíma en á sama tíma hefði það austurríska ekki sýnt sitt rétta andlit.

Króatar lögðu Egypta 27-24 á þessu sama móti í gær, en Danir mæta Egyptum í dag og heimamenn spila við Króata.

Mótið klárast svo á morgun með viðureign Dana og Króata og heimamanna og Egypta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×