Handbolti

Arnór markahæstur er FCK tapaði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór Atlason skoraði níu mörk fyrir FCK í dag.
Arnór Atlason skoraði níu mörk fyrir FCK í dag. Mynd/Birkir Baldvinsson
FCK tapaði í dag fyrir Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, 34-31, á útivelli.

Arnór Atlason var markahæstur í liði FCK með níu mörk en þetta var fjórða tap liðsins á tímabilinu. Liðið er með tíu stig í sjötta sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Bjerringbro-Silkeborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×