Handbolti

Ólafur með níu í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad Real.
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad Real.

Ólafur Stefánsson var markahæstur leikmanna Ciudad Real sem vann fimm marka sigur á Antequera í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 31-26.

Ólafur skoraði níu mörk í leiknum, þar af þrjú úr vítaköstum.

Ademar Leon missti toppsætið í kvöld þar sem liðið tapaði fyrir Aragon á útivelli, 36-32. Barcelona er nú á toppi deildarinnar en liðið vann stóran sigur á Cuenca, 33-20.

Ciudad Real er í þriðja sæti deildarinnar með sextán stig, tveimur á eftir toppliði Barcelona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×