Handbolti

Fram tapaði stórt í Slóveníu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst hjá Fram í dag.
Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst hjá Fram í dag. Mynd/Anton

Fram tapaði í kvöld fyrir RK Olimpija í Slóveníu í fyrri leik liðanna í Áskorendakeppni Evrópu. Síðari leikurinn fer fram á sama stað á morgun.

Lokatölur voru 42-23, Slóvenunum í vil, en staðan í hálfleik var 23-12. Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst Framara með sjö mörk og þær Sara Sigurðardóttir og Stella Sigurðardóttir komu næstar með fimm mörk hvor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×