Handbolti

Ciudad Real hélt toppsætinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Ciudad Real í gær.
Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Ciudad Real í gær. Mynd/Vilhelm
Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Ciudad Real sem vann stórsigur á Ademar Leon í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta, 33-20.

Staðan í hálfleik var 16-11, Ciudad Real í vil. Liðið hélt þar með toppsæti deildarinnar en bæði Ciudad Real og Barcelona eru efst á toppi deildarinnar með 26 stig eftir fimmtán leiki.

San Antonio kemur svo næst með 24 stig og Ademar Leon er í fjórða sæti deildarinnar með 24 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×