Handbolti

Logi: Ólympíuandinn í okkur

Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar
Logi Geirsson á fullu.
Logi Geirsson á fullu. Mynd/Vilhelm
„Þetta var ógeðslega ljúft. Það var líka ljúft að komast í gang og ná aðeins að setja hann," sagði Logi Geirsson kampakátur eftir sigurinn á heimsmeisturum Þjóðverja í dag.

„Mér fannst allt liðið helvíti gott. Þetta var sigur liðsheildarinnar. Við erum búnir að leggja mikla vinnu á okkur fyrir þessa leika og erum að uppskera. Við erm vel stemmdir en megum ekki gleyma okkur og verða værukærir. Þetta gæti verið stórt skref inn í átta liða úrslitin. Við fundum það í upphitun að við vorum klárir, Ólympíuandinn var í okkur og við fórnuðum okkur," sagði Logi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×