Fótbolti

Sonur David Gill í hópnum hjá Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Oliver Gill.
Oliver Gill.

Meiðslavandræði Man. Utd eru það mikil að Sir Alex Ferguson hefur þurft að velja son David Gill, framkvæmdastjóra félagsins, í hópinn fyrir leikinn gegn Wolfsburg í Meistaradeildinni.

Sá heitir Oliver Gill og er 19 ára gamall. „Ef hann er nógu góður þá spilar hann," sagði Ferguson.

United vantar tólf leikmenn í hópinn hjá sér fyrir leikinn. United þarf að ná jafntefli í leiknum til þess að tryggja sér toppsæti riðilsins.

„Sonur minn var í hópnum í fjögur eða fimm ár og hann fékk sömu meðferð og allir hinir. Það sama verður upp á teningnum hjá Oliver," sagði Ferguson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×