Fótbolti

Topplið Hoffenheim náði aðeins jafntefli gegn botnliðinu

Hoffenheim náði aðeins stigi gegn botnliði Gladbach í dag
Hoffenheim náði aðeins stigi gegn botnliði Gladbach í dag NordicPhotos/GettyImages

Kraftaverkalið Hoffenheim heldur enn þriggja stiga forystu á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar þrátt fyrir 1-1 jafntefli gegn botnliði Gladbach á heimavelli í dag.

Jafnteflið hefði geta reynst nýliðum Hoffenheim dýrara en raun bar vitni, því helstu keppinautar liðsins á toppnum, Hamburg og Hertha í Berlín, töpuðu bæði stigum í dag.

Hoffenheim hefur 39 stig á toppi deildarinnar, en lærisveinar Martin Jol í Hamburg fóru illa að ráði sínu og töpuðu 3-2 fyrir Karlsruhe eftir að hafa verið 2-0 yfir.

Hamburg hefur 36 stig í þriðja sæti og Hertha er í öðru með 37 stig eftir 1-1 jafntefli við Bielefeld.

Bayern er í fjórða sæti með 35 stig og getur því komist í annað sæti með sigri á Dortmund á heimavelli á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×