Þingkona sakar vélhjólasamtök um skipulagðar árásir 13. mars 2009 10:59 Helga Sigrún Harðardóttir er ósátt við meinta aðför í prófkjöri.
Þingkona Framsóknarflokksins, Helga Sigrún Harðardóttir, sakar Sniglanna meðal annars um að hafa látið misnota sig í annarlegum tilgangi á heimasíðu sinni. Hún hefur takmarkað aðgang að athugasemdarkerfinu vegna þessa. Í færslu sem hún birti í gær skrifar hún: „Vegna árása sem skipulagðar hafa verið á þessa síðu að undanförnu þar sem m.a. meðlimir Bifhjólasamtaka lýðveldisins - Sniglanna - hafa látið misnota sig í annarlegum tilgangi m.a. með því að gera mér upp skoðanir og ausa úr takmörkuðum lýsingarorðabrunni sínum yfir mig og aðra sem hér hafa gert heiðarlega tilraun til að tjá sig með málefnalegum hætti, hef ég nú takmarkað aðgang að athugasemdakerfi mínu." Þegar haft var samband við Helgu Sigrúnu vildi hún ekki tjá sig um málið en sagðist standa við bloggfærsluna. Helga Sigrún sóttist eftir fyrsta sætinu Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi en bar ósigur gegn Siv Friðleifsdóttur, sem varði fyrsta sætið í kjördæminu. Á bloggi Helgu segist hún hafa orðið fyrir skipulögðum árásum vélhjólasamtaka en tilurð þess mun vera pistill sem hún skrifaði fyrir tveimur árum síðan, „um þá sem leggja líf og limi í hættu, bæði sína eigin og annarra, með ofsaakstri" eins og hún orðar það á heimasíðu sinni. Í lok færslunnar ritar hún: „PS. Mér dettur hins vegar ekki í hug að þessar árásir hafi tengst prófkjöri framsóknarmanna í SV kjördæmi um síðustu helgi með nokkrum hætti!!" Þess má geta að Siv Friðleifsdóttir sækir stuðning sinn meðal annars í vélhjólasamtökin Sniglanna.
Mest lesið Myndir af fjölskyldunni til sölu í fjóra tíma eftir þyrluslysið Erlent Lögreglan komin á vettvang þegar í ljós kom að bíllinn var rétt hjá Innlent Telja mögulegt að dularfullar bækur frá miðöldum tengist Íslandi Erlent Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Innlent Dómur sterabolta mildaður verulega vegna tölvubréfs dómara Innlent Ráku yfirmann herstöðvarinnar á Grænlandi eftir heimsókn Vance Erlent Launalausir starfsmenn greiða rafmagnsreikninginn Innlent Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Innlent Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Innlent Hefja formlega rannsókn á SVEIT og Virðingu Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Bílastæðin fullbókuð um páskana „Tengdamömmumálið“ komið til Persónuverndar Dómur sterabolta mildaður verulega vegna tölvubréfs dómara Ólíklegt að Bandaríkjamenn gefi Íslendingum valið Hefja formlega rannsókn á SVEIT og Virðingu Veiðifélag fær þriggja milljóna sekt vegna innflutnings á seiðum Gaman að fagna 25 ára afmæli í ríkisstjórn Launalausir starfsmenn greiða rafmagnsreikninginn Bílastæðasjóður græddi 270 milljónir á stækkun gjaldsvæðis Enn óvissa á mörkuðum og Kristrún vill flýta sér hægt Rangur maður grunaður um að valda sjónskerðingu á myrku dansgólfi Alþingi komið í páskafrí „Það verður almannavá, dauðsföll munu færast á annað stig“ Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum - Hvert stefnir Ísland? Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Lögreglan komin á vettvang þegar í ljós kom að bíllinn var rétt hjá NEL telur orðfæri lögreglumanna ekki tilefni til endurupptöku Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Lögreglumaður dæmdur fyrir að beita kylfu við handtöku Esjustofa í endurnýjun lífdaga Umfangsmikil uppbygging við andapollinn sé „stórlega ýkt“ Máttu ekki vísa mæðgunum úr félaginu í fimmtán ár Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Bandaríkin muni semja Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Ólíklegt að hættustigið verði lækkað á komandi árum Hryðjuverkaógn, setustofa á Esjunni og milljarðar í húfi Sjá meira