Handbolti

Makedónía vann Pólland

Elvar Geir Magnússon skrifar
Kiril Lazarov skoraði þrettán mörk.
Kiril Lazarov skoraði þrettán mörk.

Athyglisverð úrslit urðu í C-riðli heimsmeistaramótsins í dag. Makedónía vann Pólland 30-29 þar sem Kiril Lazarov fór á kostum og skoraði alls þrettán mörk.

Það stefnir því í spennandi baráttu í C-riðlinum þar sem leikjum Þýskalands og Alsír annarsvegar og Rússlands og Túnis hinsvegar er ólokið.

Óvænt úrslit urðu í D-riðli í dag þegar Brasilíumenn báru sigurorð af Serbum 32-30. Í A-riðli vann Rúmenía 30-26 sigur á Argentínu og í B-riðli vann Suður-Kórea öruggan sigur á Kúweit 34-19.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×