Erlent

Biðla til mannræningja

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bowe Bergdahl er í haldi Afganista. Mynd/ AFP.
Bowe Bergdahl er í haldi Afganista. Mynd/ AFP.
Fjölskylda Bowe Bergdahl bandarísks hermanns sem var tekinn gísl, í austurhluta Afganistans í júní síðastliðnum, biðlar til mannræningjanna um að sleppa syni þeirra. Þau hvetja jafnframt son sinn til þess að vera sterkur. Yfirlýsing frá fjölskyldu Bergdahls var lesin upp fyrir fjölmiðla í dag.

„Við elskum þig og við trúum á þig. Vertu sterkur," segir í yfirlýsingu fjölskyldunnar.

Talibanar birtu nýlega myndskeið þar se Bergdahl sést, en hann er eini bandaríski hermaðurinn sem vitað er að hefur verið tekinn gísl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×