Fótbolti

Ribery vill frekar fara til Real Madrid en Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Franck Ribery fagnar marki í leik með Bayern München.
Franck Ribery fagnar marki í leik með Bayern München. Nordic Photos / AFP

Umboðsmaður Franck Ribery segir að hann vilji frekar ganga til liðs við Real Madrid en Barcelona en félögin hafa verið að eltast við hann undanfarnar vikur.

Ribery hefur einnig verið orðaður við Manchester United og Chelsea en hann er á mála hjá Bayern München sem hefur ítrekað tekið fyrir að það ætli sér að selja Ribery.

Umboðsmaður Ribery, Alan Migliaccio, er sá sami og Zinedine Zidane er með en sá síðarnefndi er nú að starfa hjá Real Madrid og hefur átt í viðræðum við Bayern um Ribery.

„Ribery myndi frekar vilja spila með Real Madrid en Barcelona. Hann hefur rætt við Zinedine Zidane og langar að spila með Real fyrir hann. En sem stendur er allt stopp þar sem að allir hjá Bayern eru í fríi til loka mánaðarins."

„Ég get því ekkert meira sagt um málið fyrr en ég hitti þá á næstu vikum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×