Klinsmann: Ribery er ekki til sölu 6. apríl 2009 16:08 Nordic Photos/Getty Images
Jurgen Klinsmann, þjálfari Bayern Munchen, segir af og frá að félagið muni selja franska landsliðsmanninn Franck Ribery sem í dag er einn eftirsóttasti leikmaður Evrópu. Ribery sló í gegn á HM í Þýskalandi árið 2006 og hefur farið mikinn með Bayern og franska landsliðinu á yfirstandandi leiktíð. Hann er samningsbundinn Bayern út 2011. "Við erum búnir að taka ákvörðun um framtíð Franck og niðurstaðan er sú að við ætlum ekki að sleppa honum," sagði Klinsmann í samtali við staðarblöð í Þýskalandi. "Ribery veit að hann er að spila með stórliði. Við getum keppt við bestu lið Evrópu og ég er ekki frá því að við séum framar en mörg þeirra í þeim aðstæðum sem við höfum skapað hérna. Við ætlum okkur stóra hluti í framtíðinni og Franck er lykilmaður í þeim plönum. Hann veit að við munum halda áfram að styrkja liðið í næsta félagaskiptaglugga," sagði Klinsmann. Karl Heinz Rummenigge, tæknistjóri Bayern, tekur í sama streng. "Franck er samningsbundinn fram í júní 2011 og fer ekki fet - ekki fyrir alla peninga í heiminum."
Þýski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka Enski boltinn Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Fleiri fréttir Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Sjá meira