Handbolti

Ísland lagði Bosníu

Róbert Gunnarsson skoraði sex mörk í dag
Róbert Gunnarsson skoraði sex mörk í dag AFP

Íslenska karlalandsliðið vann í dag sigur á Bosníu á æfingamótinu sem fram fer í Danmörku 33-31. Íslenska liðið hafði yfir í hálfleik 19-17 og hélt forskotinu til leiksloka.

Sturla Ásgeirsson var markahæstur í íslenska liðinu með sjö mörk, Róbert Gunnarsson skoraði sex, Valdimar Þórsson og Rúnar Kárason fimm, Sigurbergur Sveinsson fjögur, Þórir Ólafsson þrjú, Logi Geirsson tvö og Vignir Svavarsson eitt.

Björgvin Páll Gústavsson varði 15 skot í íslenska markinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×