Handbolti

Marmelund inn - Guðlaugur út

Guðlaugur lék með Fram og Fylki áður en hann hélt utan
Guðlaugur lék með Fram og Fylki áður en hann hélt utan Mynd/Vilhelm

Norski landsliðsmaðurinn Erlend Mamelund sem leikið hefur með Nordhorn í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, mun á næstu leiktíð ganga til liðs við FCK í Kaupmannahöfn.

Mamelund gerir tveggja ára samning við danska liðið, sem bauð mun betri samning en leikmaðurinn hafði í Þýskalandi.

Með FCK leika tveir Íslendingar, þeir Arnór Atlason og Guðlaugur Arnarsson, sem fær samning sinn ekki endurnýjaðan við félagið og er væntanlega á heimleið í vor.

Guðlaugur lék með Fram og Fylki hér heima áður en hann hélt til Þýskalands þar sem hann lék undir stjórn Alfreðs Gíslasonar hjá Gummersbach. Þá fór hann til Malmö í Svíþjóð og þaðan til FCK síðasta sumar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×