Fótbolti

Pranjic til FC Bayern

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pranjic hér í leik með króatíska landsliðinu.
Pranjic hér í leik með króatíska landsliðinu. Nordic Photos/AFP

FC Bayern hefur klófest hinn eftirsótta Króata Daniel Pranjic frá Heerenveen en Liverpool var eitt þeirra liða sem vildi fá Pranjic í sínar raðir.

FC Bayern er talið hafa greitt 7 milljónir evra fyrir leikmanninn sem getur leikið sem vinstri bakvörður og kantmaður. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.

„Þetta er alger draumur enda er Bayern eitt besta félag Evrópu. Það er á sama stalli og Barcelona, Real Madrid og Liverpool," sagði Pranjic.

Hann er annar Króatinn sem Bayern fær með skömmu millibili en Ivica Olic kom til félagsins án greiðslu á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×