Jóna Kristín afsalar sér biðlaunum Magnús Már Guðmundsson skrifar 18. september 2009 13:39 Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri í Grindavík.
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri í Grindavík, mun afsala sér rétti til biðlauna þegar hún lætur af embætti bæjarstjóra um mánaðarmótin nóvember-desember. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hver eftirmaður hennar verður en það skýrist fljótlega. Mikill óróleiki hefur verið í bæjarpólitíkinni í Grindavík frá kosningunum vorið 2006. Skipt var um meirihluta síðasta sumar og í framhaldinu tók Samfylkingarkonan Jóna Kristín, við starfi bæjarstjóra. Áður en hún settist í bæjarstjórn starfaði hún sem prestur í bæjarfélaginu. Nýverið var tilkynnt að Jóna Kristín taki við Kolfreyjuprestakalli á Austfjörðum. Meirahlutasamstarf í bæjarstjórn Grindavíkur er með Samfylkingu og Framsóknarflokki með stuðningi Vinstri grænna. Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um nýjan bæjarstjóra. Haft verði samráð við bæjarfulltrúa VG um ákvörðunina. Við meirihlutaskiptinn síðasta sumar lét Ólafur Örn Ólafsson af embætti bæjarstjóra. Starfslokasamningur hans vakti talsverða athygli en samningurinn tryggði Ólafi meðal annars 1,2 milljónir króna í mánaðarlaun út kjörtímabilið auk sex mánaða eftir að því líkur í maí á næsta ári. Þannig verður starfslokum Jónu Kristínu ekki háttað og segir Gunnar Már að hún muni afsala sér rétti til biðlauna. Jóna Kristín verði á launaskrá fram að síðasta starfsdegi sínum áður en hún flytur austur til að taka við prestakallinu.
Mest lesið Farið yfir feril Bjarna: Spáði því að hann ætti nóg eftir fyrir átján árum Innlent „Græna gímaldið“ minni helst á braggamálið og ábyrgðin liggi hjá borgarstjóra Innlent Trump yngri á leið til Grænlands Erlent Bjarni farsæll en hefur alltaf átt sér óvildarmenn Innlent Kennari fékk ekki að bregðast við slæmum umsögnum í ráðningarferli Innlent Trump-liðar vilja stöðva birtingu skýrslu Smiths Erlent Eldur í sjö ruslagámum á einum sólarhring Innlent Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd Innlent Þorgerður Katrín í Úkraínu Innlent Má heita Amína en ekki Hó Innlent Fleiri fréttir Þorgerður Katrín í Úkraínu Geta loksins kvatt drenginn sinn heima á Íslandi Kennari fékk ekki að bregðast við slæmum umsögnum í ráðningarferli „Græna gímaldið“ minni helst á braggamálið og ábyrgðin liggi hjá borgarstjóra Farið yfir feril Bjarna: Spáði því að hann ætti nóg eftir fyrir átján árum Eldur í sjö ruslagámum á einum sólarhring Eldur í bifreið og útihúsgögnum Ýmsar ívilnanir til handa læknum á landsbyggðinni í skoðun Eldur í „flugeldagámi“ við Klambratún Má heita Amína en ekki Hó Aldrei verið skráð fleiri manndrápsmál Brýnt að bregðast hratt við vanda í orkumálum Bjarni farsæll en hefur alltaf átt sér óvildarmenn Viðbrögð við ákvörðun Bjarna og þrettándabrennur Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd Eyjólfur réði aðstoðarmenn úr kosningateymi flokksins „Hann treysti mér fyrir stórum verkefnum og tækifærum“ Neitar sök í manndrápsmálinu í Neskaupstað Ekki búinn að taka ákvörðun um formannsframboð Tár féllu þegar Bjarni sagði þingflokknum frá ákvörðun sinni Tekur sætið og útilokar ekki formannsframboð „Helsti valdamaður landsins í meira en áratug“ Peningadeilur Fjólu og Eddu á dagskrá dómstóla Dagurinn eigi að snúast um ákvörðun Bjarna Allir sem hafi íhugað formannsframboð hljóti að gera það í dag Jón Gunnarsson kemur inn við brotthvarf Bjarna Hildur áfram þingflokksformaður Bjarni gefur ekki kost á sér og afsalar sér þingsæti Fjögur mál til landskjörstjórnar vegna alþingiskosninganna Lárus bætist í hóp aðstoðarmanna ráðherra Sjá meira