Handbolti

Ísland hefur yfir í hálfleik

Björgvin Páll er í stuði líkt og í gær
Björgvin Páll er í stuði líkt og í gær

Íslenska landsliðið hefur yfir í hálfleik 15-13 gegn Túnisum í leiknum um þriðja sætið á minningarmótinu um Staffan Homquist sem fram fer í Svíþjóð. Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Ásgeir Örn Hallgrímsson er markahæstur í íslenska liðinu í hálfleik með 5 mörk, Róbert Gunnarsson er með 4 mörk og Logi Geirsson með 3.

Björgvin Gústavsson er líka í miklu stuði í Malmö Arena í dag og hefur varið 11 skot í markinu. Hann heldur þar með uppteknum hætti frá leiknum við Egypta í gær þar sem hann átti frábæran leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×