Bröndby fékk slæman skell Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. september 2009 16:41 Stefán Gíslason kom inn á sem varamaður í dag. Mynd/Vilhelm
Stefán Gíslason og félagar í Bröndby máttu sætta sig við stórt tap fyrir Silkeborg, 4-1, í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Með sigri hefði Bröndby farið upp að hlið Esbjerg í öðru sæti deildarinnar en liðið er nú í fjórða sætinu með sautján stig, fjórum á eftir toppliði OB. Esbjerg getur reyndar komið sér á toppinn með sigri á AGF á morgun. Stefán Gíslason kom inn á sem varamaður á 66. mínútu en þá var staðan þegar orðin 4-0 fyrir Silkeborg. Bröndby tókst að klóra í bakkann með marki á 82. mínútu. Viktor Bjarki Arnarsson var í byrjunarliði Nybergsund sem gerði 3-3 jafntefli við Mjöndalen í norsku B-deildinni í dag. Viktor Bjarki fór af velli á 73. mínútu. Nybergsund er í sjötta sæti deildarinnar og virðist eiga litla möguleika á að vinna sér sæti í norsku úrvalsdeildinni. Það er þó ekki útilokað. Þá var einnig leikið í sænsku B-deildinni í dag. Hannes Þ. Sigurðsson og Ari Freyr Skúlason voru báðir í byrjunarliði GIF Sundsvall sem gerði 1-1 jafntefli við Trollhättan í dag. Ari Freyr var tekinn af velli á 43. mínútu, væntanlega vegna meiðsla, og Hannes Sigurðsson á 58. mínútu. Þá gerði Norrköping markalaust jafntefli við Väsby í sömu deild. Gunnar Þór Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Norrköping en Stefán Þór Þórðarson var ekki í leikmannahópi liðsins í dag. GIF Sundsvall er í þriðja sæti deildarinnar með 44 stig en það sætir veitir umspilsrétt við lið úr úrvalsdeildinni. Norrköping er hins vegar í bullandi fallbaráttu og er nú í fimmta neðsta sæti, aðeins tveimur stigum frá fallsæti.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Fleiri fréttir Bestu guttarnir í Bestu deild karla Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Sjá meira