Lífið

Ætla að hertaka hægri hlið Laugavegar

Sara McMahon skrifar
Færa út kvíarnar Valdimar Geir og Hermann Fannar hafa nú tekið yfir rekstur kaffihússins Tíu dropar. Fyrir reka þeir Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda.
Færa út kvíarnar Valdimar Geir og Hermann Fannar hafa nú tekið yfir rekstur kaffihússins Tíu dropar. Fyrir reka þeir Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda. Vísir/Anton BRink
Hermann Fannar Valgarðsson og Valdimar Geir Halldórsson reka saman kaffihúsið Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda auk farfuglaheimilisins Reykjavík Backpackers. Nú hafa þeir félagar einnig tekið við rekstri kaffihússins Tíu dropa við Laugaveg.

„Þetta var nú alveg óplanað. Við sáum kaffihúsið auglýst til sölu fyrir nokkrum mánuðum og okkur leist svo vel á það að við ákváðum að láta slag standa. Þetta fellur líka vel inn í áform okkar um að taka yfir alla hægri hlið Laugavegarins, allt frá Hlemmi og niður að Bankastræti,“ segir Hermann Fannar, betur þekktur sem Hemmi.

Aðspurður segir Hemmi að ekki standi til að breyta kaffihúsinu heldur verður það áfram starfrækt í núverandi mynd og með sama starfsfólki. „Þar sem kaupin komu svolítið flatt upp á okkur þá höfum við ekki ákveðið hvaða stefnu við tökum í þessu, en pælingin er að hrófla við sem minnstu en bæta við matseðilinn og lengja afgreiðslutímann eitthvað. Staðsetningin er einnig góð því kaffihúsið er beint á móti farfuglaheimilinu og því munum við geta beint gestum okkar þangað í morgunverð.“

Auk þess að hafa tekið við rekstri Tíu dropa hyggjast drengirnir koma upp móttöku og afþreyingarherbergi á neðstu hæð hússins sem hýsir farfuglaheimiliið. „Við ætlum að stækka aðeins við hostelið og koma upp verslun, móttöku, einhvers konar setustofu og litlum hótelbar.

Framkvæmdum ætti að vera lokið um áramótin ef allt gengur samkvæmt áætlun,“ segir Hemmi að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×