Fótbolti

Klinsmann orðaður við Hoffenheim

Hoffenheim hefur hrunið niður í níunda sæti í úrvalsdeildinni en var á toppnum í janúar
Hoffenheim hefur hrunið niður í níunda sæti í úrvalsdeildinni en var á toppnum í janúar Nordic Photos/Getty Images

Spútniklið Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni hefur heldur betur komið niður á jörðina eftir áramótin eftir að hafa verið á toppnum fyrir jólafrí.

Þýska blaðið Bild heldur því fram að þjálfarinn Ralf Rangnick sé ósáttur við bæði liðið og stjórn félagsins, sem ekki sé tilbúin til að láta hann hafa nógu mikla peninga til leikmannakaupa í sumar.

Rangnick er samningsbundinn Hoffenheim til ársins 2011, en Bild heldur því fram að forráðamenn Hoffenheim séu þegar komnir í viðræður við Jurgen Klinsmann sem á dögunum var rekinn frá Bayern.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×