Handbolti

B-lið Íslands í þriðja sæti

Bjarni Fritzson
Bjarni Fritzson

B-landslið Íslands hafnaði í þriðja sæti á æfingamótinu sem haldið var í Frakklandi eftir öruggan sigur á Tékkum í morgun 34-28 í leik um þriðja sætið.

Tékkneska liðið hafði undirtökin allan fyrri hálfleik og hafði yfir 17-14 í leikhléi og komst í 26-20, en þá hrökk varnarleikur íslenska liðsins í gang og valtaði yfir Tékkana.

Bjarni Fritzson var með 7 mörk fyrir íslenska liðið og Ólafur Guðmundsson 6.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×