Handbolti

Öruggt hjá Svíum gegn Spánverjum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Dalibor Doder átti stórleik í kvöld.
Dalibor Doder átti stórleik í kvöld.

Svíþjóð vann Spán 34-30 í B-riðli heimsmeistaramótsins í kvöld. Sigur Svía var öruggur, þeir voru með leikinn í sínum höndum frá upphafi til enda.

Dalibor Doder skoraði alls ellefu mörk fyrir Svíþjóð sem hefur fullt hús eftir þrjár fyrstu umferðir keppninnar.

Ungverjaland og Slóvakía gerðu 24-24 jafntefli í A-riðli og Þýskaland burstaði Alsír 32-20 í C-riðli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×