Innlent

Rændi konu á heimili hennar og lamdi

Héraðsdómur Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness.

33 ára gamall karlmaður var dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag, meðal annars fyrir fólskulegt rán.

Maðurinn braust inn á heimili konu í Reykjavík í júlí á þessu ári. Maðurinn hótaði konunni lífláti og sló hana með krepptum hnefa í höfuð og skrokk í þeim tilgangi að fá út úr henni verðmæti. Hann hafði að lokum á brott með sér skartgripi konunnar.

Konan hlaut kúlu, mar og skurð á höfuð við atlöguna.

Þá var maðurinn einnig dæmdur fyrir að hafa brotist inn í aðra íbúð, sömu nótt og hann gekk í skrokk á konunni, og haft á brott með sér margvísisleg verðmæti. Þá stal hann einnig þremur reiðhjólum í febrúar á þessu ári.

Maðurinn hefur margoft komist í kast við lögin vegna fíkniefnaneyslu. Þá var hann sviptur ökuréttindum ævilangt en hann var ákærður og dæmdur fyrir að hafa margsinnis ekið undir áhrifum fíknefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×