Innlent

Skilorðsbundið fangelsi fyrir kannabisræktun

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.

Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir kannabisræktun.

Maðurinn var ákærður fyrir að hafa haft í vörslum sínum 80 kannabisplöntur og um 37 grömm af kannabisi á heimili sínu í Vogunum á síðasta ári.

Maðurinn játaði brot sín greiðlega en hann var ekki sakfelldur fyrir að hafa ræktað plönturnar með það að sjónarmiði að selja og dreifa fíkniefnunum. Þótti því dómara hæfilegt að skilorðsbinda dóm mannsins til þriggja ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×