Innlent

Tunglmyrkvinn er búinn

MYND/Vefmyndavél Mílu

Tunglmyrkvi var í morgun og sást hann greinilega á höfuðborgarsvæðinu . Almyrkvinn hófst klukkan 7:40 og stóð yfir til klukkan 8:54. Tunglið er því farið að gægjast út úr skugganum á nýjan leik. Tunglmyrkvann ber upp á vetrarsólstöður, stysta dag ársins og sést hann í Norður-Ameríku, Mið-Ameríku, hluta Suður-Ameríku, á Grænlandi og Íslandi. Seinast sást almyrkvi frá Íslandi aðfaranótt 21. febrúar 2008.

Afarsjaldgæft er að almyrkva á tungli beri upp á sama dag og vetrarsólstöður eins og í dag en á vetrarsólstöðum er sólin lægst á himni á norðurhveli jarðar. Þetta gerðist síðast fyrir 456 árum síðan eða árið 1554, samkvæmt upplýsingum frá NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna.

Erlendir fjölmiðlar hafa rifjað upp í tilefni dagsins hvað gerðist árið 1554 en það var fátt markvert. Einna helst að Lady Jane Gray var hálshöggvin fyrir föðrulandssvik en hún hafði ríkt sem drottning Breta í níu daga árið áður.

Hér á Íslandi gerðust tveir atburðir sem teljast markverðir. Annar var að klausturhald var lagt formlega og endanlega niður hér á landi 1554. Eftir það skipaði Danakonungur sérstaka umboðsmenn yfir rekstur eigna klaustranna.

Hinn er að eldgos varð við Vondubjalla um 10 km suðvestur af Heklu. Gosið stóð í 6 vikur og myndaði Rauðubjalla en frá eldstöðinni rann það sem kallað er Pálssteinshraun.

Fréttablaðið og Vísir efna til samkeppni um bestu myndina af tunglmyrkvanum sem nú stendur yfir. Í fyrstu verðlaun er glæsileg Sony NEX myndavél og leikhúsmiðar í önnur og þriðju verðlaun. Myndunum skal skila inn á netfangið ljósmyndakeppni@frettabladid.is fyrir klukkan 15 í dag. Vinningsmyndin verður birt bæði í Fréttablaðinu á morgun og á Vísi ásamt fleiri myndum sem dómnefnd telur athyglisverðar.

Á vefmyndavél Mílu má fylgjast með myrkvanum í beinni útsendingu.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×