Næstversta mannfjöldaár frá 1890 21. desember 2010 12:57 Frá Bolungarvík.
Íbúar á Íslandi eru nú liðlega 318 þúsund talsins og fjölgaði um aðeins 0,2 prósent á árinu. Ef undanskilið er árið í fyrra, þegar landsmönnum fækkaði, er þetta minnsta fólksfjölgun sem orðið hefur á Íslandi frá árinu 1890. Veruleg fólksfækkun varð á Vestfjörðum á árinu. Mannfjöldatölur Hagstofunnar miðað við 1. desember bera glöggt vitni um þann mikla brottflutning sem á sér stað frá landinu um þessar mundir. Þannig hefur meðaltalsfjölgun á landinu undanfarinn hálfan annan áratug verið um 1,2 prósent á ári, eða um 3.500 manns á ári. Nú mælist fjölgunin hins vegar aðeins um 640 manns eða um einn sjötti af því sem væri í eðlilegu árferði. Í fyrra gerðist það í fyrsta sinn frá tímum fólksflóttans mikla til Vesturheims á ofanverði 19. öld að fólki fækkaði á Íslandi. Staðan í ár er litlu skárri því, ef frá er talið síðasta ár, þarf að fara aftur til ársins 1890 til að finna dæmi um jafn litla fólksfjölgun og á þessu ári. Raunar fækkar fólki í öllum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu og Norðurlandi eystra. Þannig fækkaði á Suðurnesjum um 1,4 prósent, á Austurlandi fækkaði íbúum um 1,2 prósent en mest fækkaði hins vegar á Vestfjörðum eða um 3,2 prósent. Þar varð Bolungarvík verst úti en þar fækkaði íbúum um 8,4 prósent. Í Vesturbyggð fækkaði um 5 prósent. Af byggðum í öðrum landshlutum má nefna að á Seyðisfirði fækkaði íbúum um 5,2 prósent, í Mýrdalshreppi fækkaði um 7,2 prósent og í Garðinum fækkaði um 4,2 prósent.
Mest lesið Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Innlent „Ég lagði allt undir“ Innlent Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Úrslitastund í troðfullri Valhöll Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Útiloka ekki samstarf en segja málefnin skipta mestu máli Spáir því að Bjarni gangi til liðs við Miðflokkinn Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur sú breiðfylking sem hann var Sjá meira