Fimmtungur öryrkja með minna en 150 þúsund á mánuði 21. desember 2010 18:45
Gap er á milli þeirra öryrkja sem minnstar hafa tekjurnar og hinna sem hafa hæstar tekjur. Tæpur fimmtungur öryrkja er með minna en 150 þúsund krónur á milli handanna í mánuði, en á áttunda hundrað öryrkja hafa meira en 350 þúsund krónur. Öryrkjar hafa mótmælt fréttaflutningi Stöðvar 2 undanfarið og meðal annars sagt að dæmi einnar konu gefi villandi mynd af kjörum öryrkja almennt. Aðrir segja að stokka þurfi upp kerfið, því hvatinn til að losna út úr því sé lítill þegar fólk geti lækkað í tekjum við að komast í vinnu. En hver eru raunveruleg kjör öryrkja? Við spurðum Tryggingastofnun og fengum að vita hvaða tekjur öryrkjar hafa til að framfleyta sér. Tölurnar sýna krónurnar sem fólk fær í vasann, það er, inni í þeim eru meðal annars allar launa-,lífeyris- og fjármagnstekjur sem öryrkjar hafa, eftir skatta. Eina sem getur bæst við eru húsaleigu, barna- og vaxtabætur, rétt eins og hjá fólki á vinnumarkaði. Opinbert framfærsluviðmið er hvergi til - en ætla má að ríkið telji fólk geta lifað af atvinnuleysisbótum, sem nú eru fyrir barnlausa rúmar 134 þúsund krónur eftir skatta. Samkvæmt tölunum frá Tryggingastofnun eru um 2902, eða 18,4% öryrkja með tekjur undir 150 þúsund krónur á mánuði. Sem sagt jafnilla eða verr staddir en atvinnulausir. 6757 eða 43% hafa 150-200 þúsund kr. á mánuði. Um 20%, eða 3147, hafa 200-250 þúsund kr. til að framfleyta sér. Þá eru upp undir 3000 öryrkjar, eða tæpur fimmtungur hópsins alls, yfir meðalmánaðarlaunum í landinu, með 250 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur eða meira. Þar af eru 757 einstaklingar með 350 þúsund krónur eða meira í samanlagðar tekjur eftir skatta.
Mest lesið Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Innlent „Ég lagði allt undir“ Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það Innlent Skorað á Sigurð Inga að afturkalla tilmæli Svandísar Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Úrslitastund í troðfullri Valhöll Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Útiloka ekki samstarf en segja málefnin skipta mestu máli Spáir því að Bjarni gangi til liðs við Miðflokkinn Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur sú breiðfylking sem hann var Sjá meira