Innlent

Full kona keyrði Lexusjeppa á ljósastaur

Lögreglan minnir ökumenn sérstaklega á viðvörunarorðin „Eftir einn ei aki neinn" nú um hátíðirnar.
Lögreglan minnir ökumenn sérstaklega á viðvörunarorðin „Eftir einn ei aki neinn" nú um hátíðirnar.

Ölvaður ökumaður ók lúxusjeppa á ljósastaur við Bústaðaveg á níu í kvöld.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er bíllinn af gerðinni Lexus og verður ökumaðurinn, kona á sextugsaldri, vistuð í fangaklefa í nótt og yfirheyrð í fyrramálið þegar að áfengisvíman er runnin af henni.

Lögreglan er í sérstöku átaki á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana þar sem minnt er á viðvörunarorðin „Eftir einn ei aki neinn". Markmiðið er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunar- og fíkniefnaakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni.

Um þrjú hundruð og fimmtíu ökumenn voru til að mynda stöðvaðir  um helgina í átakinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×