Innlent

Leigubílstjóra ógnað með sprautunál og hann rændur

Leigubílstjóra var ógnað í nótt með sprautunál og hann rændur. Atvikið átti sér stað í Trönuhjalla í Kópavogi um klukkan hálfeitt og hafði árásarmaðurinn fjármuni af leigubílstjóranum. Að sögn lögreglu er ákveðinn aðili grunaður um verknaðinn og er hans leitað.

Rétt fyrir klukkan fjögur í nótt stöðvaði lögregla bifreið í Borgartúni. Ökumaður reyndist ölvaður og fundust fíkniefni í bifreiðinni. Ökumaður og tveir farþegar gista nú fangageymslur. Um klukkan fimm var síðan brotist inn í raftækjaverslun í Síðumúla. Enginn hefur enn verið handtekinn grunaður um verknaðinn og ekki er ljóst hvort og þá hverju var stolið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×