Fyrsta góðgerðasamkoma verðandi prinsessu 20. desember 2010 00:15 Kate Middleton og Vilhjálmur kampakát á góðgerðasamkomunni á laugardagskvöld.mynd/ap
Kate Middleton kom í fyrsta sinn fram opinberlega á laugardagskvöld eftir að tilkynnt var um trúlofun hennar og Vilhjálms Bretaprins. Parið mætti saman á góðgerðasamkomu í Norfolk-sýslu til styrktar krabbameinssjúkum og vakti að vonum mikla athygli. Þetta voru ákveðin tímamót fyrir Middleton því þetta var sú fyrsta af fjölda góðgerðasamkoma sem hún verður viðstödd í framtíðinni. Hin 28 ára Middleton verður ekki opinber hluti af konungsfjölskyldunni fyrr en hún og Vilhjálmur ganga í hjónaband 29. apríl á næsta ári. Samt sem áður tók hún í fyrsta sinn þátt í árlegum jólahádegisverði í Buckingham-höll um helgina þar sem allt konungsfólkið var samankomið, þar á meðal Elísabet Englandsdrottning. „Hún leit gullfallega út," sagði Sophie Pinasent, sem var viðstödd góðgerðasamkomuna í Norfolk, um Middleton. „Hún var yndisleg og þau litu út fyrir að vera mjög hamingjusöm. Mér fannst þetta mjög spennandi allt saman." Það að Middleton hafi verið viðstödd þessa samkomu gefur til kynna að hún muni einbeita sér að stuðningi við krabbameinssjúka eftir að hún verður prinsessa. Lítið er þó vitað um áhugamál hennar og því gætu annars konar góðgerðamál orðið fyrir valinu. Á sama tíma og Middleton og Vilhjálmur voru á góðgerðasamkomunni var Harry, bróðir Vilhjálms, staddur í Berlín. Þar tók hann á móti verðlaunum fyrir mannúðarstarf sitt. - fb
Mest lesið Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Innlent „Ég lagði allt undir“ Innlent Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Þrír táningar létust í bílslysi í Svíþjóð Enn rafmagnslaust á Kúbu „Tilraun Hezbollah til að ráða mig og konu mína af dögum voru stór mistök“ Aftur rafmagnslaust á Kúbu Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Sjá meira