Innlent

Addi Fannar í ráðinn í Hörpu

Arngrímur Fannar Haraldsson, betur þekktur sem Addi Fannar í Skítamóral, hefur verið ráðinn verkefnastjóri tónlistarviðburða í Hörpu með rafmagnaða tónlist sem sérsvið.

„Arngrímur Fannar er með B.S próf í ferðamálafræði frá HÍ og starfaði sem sölustjóri hjá Icelandair Hotels á árunum 2005 til 2007," að því er fram kemur í tilkynningu frá Hörpu. „Hann vann við viðburðastjórnun hjá Glitni árin 2007 og 2008 og starfaði nú síðast sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Vodafone."

Þá er þess getið að Arngrímur Fannar hafi 20 ára reynslu af hljóðfæraleik sem meðlimur í hljómsveitinni Skítamóral auk þess sem hann hafi talsverða reynslu af tónleikahaldi og skipulagningu tónlistarviðburða. Arngrímur Fannar hefur störf í Hörpu í febrúar næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×