Erlent

Konunglegt brúðkaup: Fyrstu minjagripirnir í sölu

Kate Middleton og Vilhjálmur prins.
Kate Middleton og Vilhjálmur prins.

Þrátt fyrir að enn séu fjórir mánuðir þangað til Vilhjálmur Bretaprins gengur upp að altarinu til að kvænast Kate Middleton eru fyrstu minjagripirnir tengdir brúðkaupinu komnir í sölu.

Um er að ræða fyrstu gripina sem konungsfjölskyldan leggur blessun sína yfir. Búast má við því að á næstu vikum og mánuðum fyllist minjagripabúðir í Bretlandi af slíkum vörum en í dag verða menn að gera sér þrjá gripi að góðu, kaffibolla, disk og pillubox. Gripirnir eru með upphafsstöfum brúðhjónanna og dagsetningu brúðkaupsins, sem verður haldið 29 apríl á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×