Innlent

Varaþingmaður Þráins hefði kosið gegn fjárlagafrumvarpinu

Þráinn Bertelsson er nú í VG, en varamaður hans ekki.
Þráinn Bertelsson er nú í VG, en varamaður hans ekki.
Varaþingmaður Þráins Bertelssonar segist hafa greitt atkvæði gegn fjárlagafrumvarpinu ef hún hefði átt sæti á þingi, en frumvarpið var samþykkt með einum þingmanni í síðustu viku. Hún segist ekki styðja ríkisstjórnina.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir liðsmaður Hreyfingarinnar er varaþingmaður Þráins Bertelssonar sem á dögunum gekk til liðs við Vinstri græna. Þráinn greiddi atkvæði með fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar í síðustu viku en það var samþykkt með atkvæðum þrjátíu og tveggja þingmanna. 31 þingmaður sat hjá og enginn greiddi atkvæði á móti.

En hvað hefði varamaður Þráins gert, ef hún hefði setið á þingi við afgreiðslu frumvarpsins?

„Ég styð ekki þetta fjárlagafrumvarp og mér finnst að í svona stórum málum þar sem fólk er kjörið inn á þing til þess að taka afstöðu þá eigi það að kjósa á móti ef það er ekki hlynnt. Ég hugsa að ég hefði greitt atkvæði á móti frumvarpinu í stað þess að sitja hjá," segir Katrín.

Líkt og fram hefur komið í fréttum greiddu þrír þingmenn vinstri grænna fjárlagafrumvapinu ekki atkvæði sitt. Ólafur Þ. Harðarson stjórmálafræðingur segir í Fréttablaðinu í dag að stuðningurinn við ríkisstjórin sé greinilega mjög knappur. Á endanum sé þetta samt sem áður spurning um hvort þessir þrír þingmenn séu tilbúnir til þess að verja stjórnina vantrausti.

En styður varamaður Þráins ríkisstjórnina?

„Nei það geri ég ekki. Mér finnst líka að vegna þess sem stendur í Stjórnarskránni, að þú eigir að fylgja þinni innstu sannfæringu, þá hafi þetta verið rétt hjá þeim að fara þessa leið. Við erum alltaf að tala um að hér verði að verða breyting á þessu svokallaða flokksræði. Þetta er skref í átt að breytingum, það er að flokksræðið minnki. Að menn fari að kjósa samkvæmt sinni innstu sannfæringu, hverju sinni."

Þráinn segir sjáflur í Fréttablaðinu í morgun að óþarfi sé að hafa áhyggjur af því að hann forfallist á þingi, hann sé heilsugóður og bjargist ágætlega án varamanns. Katrín segist hinsvegar klár, ef kallið kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×